Comunicati Stampa
Economia

Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2025 og þriggja ára áætlun 2026 – 2028

 Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2025 og þriggja ára áætlun fyrir tímabilið 2026 – 2028 var lögð fram í bæjarstjórn Árborgar til fyrri umræðu í dag miðvikudaginn 20. nóvember 2024. Gert er ráð fyrir að seinni umræða og afgreiðsla fjárhagsáætlunar í bæjarstjórn verði miðvikudaginn 4. desember 2024. Fjárhagsáætlun sem nú liggur fyrir til fyrri umræðu gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðunnar að meðtöldum samstarfsverkefnum, án afskrifta og fjármagnsliða sé...
Selfoss, (informazione.it - comunicati stampa - economia)

 

Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2025 og þriggja ára áætlun fyrir tímabilið 2026 – 2028 var lögð fram í bæjarstjórn Árborgar til fyrri umræðu í dag miðvikudaginn 20. nóvember 2024. Gert er ráð fyrir að seinni umræða og afgreiðsla fjárhagsáætlunar í bæjarstjórn verði miðvikudaginn 4. desember 2024. 



Fjárhagsáætlun sem nú liggur fyrir til fyrri umræðu gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðunnar að meðtöldum samstarfsverkefnum, án afskrifta og fjármagnsliða sé jákvæð um 2.854 m.kr. Afskriftir eru áætlaðar 1.087 m.kr., fjármagnskostnaður er áætlaður 1.661,4 m.kr. Heildarniðurstaða samstæðunnar er því jákvæð um 105,2 m.kr. 

Áætlunin gerir ráð fyrir að samanlagðar tekjur A og B hluta verði 20.597,8 m.kr. á árinu 2025. Heildarlaunakostnaður er áætlaður 10.742 m.kr. sem er 52% af heildartekjum og 72% af skatttekjum. Annar rekstrarkostnaður er áætlaður um 6.770,3 m.kr. 

Samkvæmt áætluninni verða skatttekjur (útsvar, framlag úr Jöfnunarsjóði og fasteignaskattur) á íbúa 1.287 þús.kr. og heildareignir á íbúa verða 3.011 þús.kr. 

Veltufé samstæðunnar frá rekstri er áætlað 2.092 m.kr. Afborganir lána eru áætlaðar 3.804,8 m.kr. og er þar af eingreiðslulán sem er á gjalddaga 01.08.2025 að upphæð 1.375 m.kr.  

Skuldahlutfall árið 2025 er áætlað 153,0% og skuldaviðmið skv. reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga nr. 502/2012 er áætlað 126,5% árið 2025. Áætlað er að skuldaviðmiðið verði komið niður í 102,8% árið 2028. 

Fræðslu- og uppeldismál eru sem fyrr langstærsti málaflokkurinn en útgjöld til fræðslu- og uppeldismála nema 57,7% af áætluðum skatttekjum ársins 2025. Félagsþjónustan er með 17,0%, æskulýðs- og íþróttamál eru með 9,1%, sameiginlegur kostnaður er með 7,0% og umferðar- og samgöngumál er með 3,6%. 



Veltufé frá rekstri er áætlað 2,092 ma.kr árið 2025, 2,352 ma kr. árið 2026, 2,593 ma kr. árið 2027 og 2,948 ma kr. árið 2028. 

Framlegðarhlutfall er áætlað 13,9% fyrir árið 2025 og hækkar í 15,3% fyrir árið 2028 

Fjárfestingar eru áætlaðar 1,85 ma.kr. árið 2025, 1,937 ma.kr árið 2026 og 1,937 ma.kr árið 2027 og 1,932 ma.kr árið 2028. 





Hjálagt er að finna frumvarp að fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2025 til 2028. 

Upplýsingar vei ta Bragi Bjarnason , bæjarstjóri netfang:  bragi @ arborg.is og Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri netfang: unnurej@arborg.is  

 

Attachment


Per maggiori informazioni
Sito Web
arborg.is
Ufficio Stampa
 Nasdaq GlobeNewswire (Leggi tutti i comunicati)
2321 Rosecrans Avenue. Suite 2200
90245 El Segundo Stati Uniti
Allegati
Non disponibili