Fossar fjárfestingarbanki hf.: Útboð á víxlum 4. september 2024

Fossar fjárfestingarbanki hf.: Útboð á víxlum 4. september 2024 Fossar fjárfestingarbanki hf. efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn 4. september 2024.Boðnir verða til sölu víxlar í 6 mánaða flokki FOS 25 0311 með lokagjalddaga þann 11. mars 2025. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötu vöxtum sem tekið er. Nafnverðseining víxlanna er 20 m.kr. og er útboðið því undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d-liðar 4. mgr. 1...
Comunicato Precedente

next
Comunicato Successivo

next
Reykjavik, (informazione.it - comunicati stampa - economia)

Fossar fjárfestingarbanki hf. efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn 4. september 2024.

Boðnir verða til sölu víxlar í 6 mánaða flokki FOS 25 0311 með lokagjalddaga þann 11. mars 2025. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötu vöxtum sem tekið er. Nafnverðseining víxlanna er 20 m.kr. og er útboðið því undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d-liðar 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar ESB nr. 2017/1129. Bankinn áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta. Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir þó eigi síðar en fyrir opnun markaða fimmtudaginn 5. september.

Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um tilboðsfjárhæð og flata vexti, skal skilað til Fossa fjárfestingarbanka fyrir kl. 17:00, miðvikudaginn 4. september 2024, á netfangið [email protected].

Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu flokksins og umsókn um töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða þá birt á vefsíðu bankans: www.fossar.is/fjarfestar. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 11. september 2024.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson
Fossar fjárfestingarbanki hf.
Sími: 522-4000
Netfang: [email protected]

Ernir Jónsson
Fossar fjárfestingarbanki hf.
Sími: 522-4000
Netfang: [email protected]


Per maggiori informazioni
Ufficio Stampa
 Nasdaq GlobeNewswire (Leggi tutti i comunicati)
2321 Rosecrans Avenue. Suite 2200
90245 El Segundo Stati Uniti
Allegati
Slide ShowSlide Show
Non disponibili